expert.is
Sérfræðiteymi og sérfræðilausnir
expert.is býður breiða flóru ráðgjafar, þróunar og verkefnastjórnunar.
Þvert á atvinnugreinar og með margar sérfræðigreinar.
Ríkiskaup tekur tilboði Expert
Expert sendi nýlega inn tilboð vegna auglýsingar Ríkiskaupa um ráðgjöf í upplýsingatækni. Niðurstaðan er að Expert.is er meðal þeirra fyrirtækja sem valin hafa verið. Þetta er sérstaklega ánægjulegt fyrir svona nýsköpunarfyrirtæki sem þurfa að skapa sér sess á markaðnum.
Val á tilboði og tilkynning um niðurstöðu í útboði nr. 14657 Ráðgjöf í upplýsingatækni – Rammasamningur með örútboðum:
Ágæti viðtakandi
Það tilkynnist yður hér með að ákveðið hefur verið að velja tilboð frá:Admon Ráðgjöf ehf
Applicon ehf
Ásverk verkfræðiþjónusta ehf
Capacent ehf
EJS hf
Eskill ehf
Expert ehf
Framnes ehf
Gagarín ehf
Hugur / Ax ehf
Hugvit hf
IT Ráðgjöf og hugbúnaðarþjónusta ehf
Kögun ehf
Mannvit hf
Míkron ehf
Opin Kerfi ehf
ParX ehf
Sensa ehf
Skyggnir ehf
SKÝRR hf
Staki automation ehf
Stiki ehf
Teris ehf
TM Software – Origo ehf
Trackwell hf
Tölvu- og verkfræðiþjónustan ehf
UT Ráðgjöf ehf
Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar ehf
Vigor ehf
Viki ehf
Þekking hfí ofangreindu útboði, enda tilboðin metin hagstæðust fyrir kaupendur samkvæmt matslíkani útboðslýsingar.
Þegar um er að ræða innkaupaferli sem lýkur með vali kaupanda á tilboði skulu líða a.m.k. 10 dagar frá því að ákvörðun um val tilboðs er tilkynnt þar til tilboð er endanlega samþykkt, sbr. 76. gr. laga 84/2007.
Samkvæmt 75. gr. laga nr. 84/2007 eiga bjóðendur, sem tilboðum var hafnað frá, rétt á að fá rökstuðning fyrir höfnun á tilboðum sínum, sendi þeir um það skriflega beiðni (bréf, fax, tölvupóstur) til Ríkiskaupa innan 14 daga frá því að bjóðanda var tilkynnt ákvörðun. Ríkiskaup munu svara beiðninni eigi síðar en 15 dögum eftir að hún berst.
Í XIV kafla laga um opinber innkaup, nr. 84/2007 er fjallað um kærunefnd útboðsmála. Þar kemur fram í 1. mgr. 94 gr.: Kæra skal borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan fjögurra vikna frá því kærandi vissi eða mátti vita um ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Alltaf er þó heimilt að bera kæru undir kærunefnd útboðsmála innan 15 daga frá því að rökstuðningur skv. 75 gr. er veittur. Fyrir hverja kæru skal kærandi greiða kærugjald að fjárhæð 50.000 kr.
Lög um opinber innkaup nr. 84/2007 eru birt í heild sinni á heimasíðu Ríkiskaupa http://www.rikiskaup.is/um-rikiskaup/logogreglur/.
Ríkiskaup þakka yður fyrir þátttökuna.
Með kveðju
f.h. RíkiskaupaAnna Sóley Sveinsdóttir
Útboðsfulltrúi / Tender Division
Tags: expert, Ríkiskaup, tilboð, upplýsingatækni
RSS Feed
English
Íslenska 
