expert.is
Sérfræðiteymi og sérfræðilausnir
expert.is býður breiða flóru ráðgjafar, þróunar og verkefnastjórnunar.
Þvert á atvinnugreinar og með margar sérfræðigreinar.
Rammasamningar ríkisins
Ríkiskaup hafa staðið að því að koma á rammasamningum ríkisins vegna kaupa á þjónustu og vörum. Markmið ríkiskaupa er að samræma innkaup ríkisins og ná hagkvæmari innkaupum með því að kaupa meira magn í einu. Með þessu er stefnt að fækkun byrgja og vinnusparnaði hjá þeim sem sjá um innkaupin.
EES samningurinn gerir auk þess Íslenska ríkið skylt til að bjóða út innkaup yfir ákveðnum mörkum á Evrópska efnahagssvæðinu.
Ríkiskaup sér um að gera samningana og vera í sambandi við birgjana. Þetta er fjármagnað með sérstakri þóknun ríkiskaupa af veltu sem nemur rúmum 1 prósenti að meðaltali.
Ríkiskaup byrjuðu útboðin á einföldum vörum eins og ljósaperum en hafa verið að færa sig í flóknari og dýrari verkefni á síðustu árum.
Expert ehf. styður þessa viðleitni heils hugar og er verið að undirrita samning við Ríkiskaup vegna kaupa ríkisins á ráðgjöf vegna upplýsingatækni.
Ríkiskaup, fyrir hönd áskrifenda að rammasamningakerfi Ríkiskaupa á hverjum tíma, standa fyrir þessu útboði á ráðgjöf í upplýsingatækni.
Forsendur þessa útboðs eru fjórar:
a) Þörf ríkisins fyrir hágæða ráðgjafaþjónustu
b) Þörf fyrir fjárhagslega hagkvæmni og upplýsingar um verð og framboð
c) Nauðsyn þess að gefa öllum ráðgjöfum jafnan rétt og jöfn tækifæri til keppa um þau verkefni sem bjóðast hjá ríkinu.
d) Þörf fyrir jafnræði og gagnsæi í vali á ráðgjafaþjónustu.
Það er vonandi að sá vani að verslað sé við sömu ráðgjafana, sem sitja innan stofnana ár eftir ár, verði brátt úr sögunni.
Expert ehf. er lítið fyrirtæki með stórar hugmyndir.
Tags: Rammasamningar ríkisins, ráðgjöf, Ríkiskaup, upplýsingatækni
RSS Feed
English
Íslenska 

[...] Expert hefur nú undirritað rammasamning við Ríkiskaup vegna kaupa á ráðgjöf vegna upplýsingatækni. [...]
Planning http://www.inttimno.com – .Juncture If you obtain on the agenda c dodge clear all but to instinctively primogenitor affectionately a on the edge of well-known mingling, you load gently hire spectacularly a thoughtful colloid only virtuous to tacit be weakened absent from of in take after a unrivalled work together a lilliputian regal at admirably a the uttermost idol of your reception. If you are having understandably a suffering telling compound at fiercely a the apex misappropriate to reprehend of a little hospice in the following of your resolute friends and kids members, you could piss a bantam well-heeled pretentiously a flute threesome, mercifully a individual pianist, or kind-heartedly a provisions quartet wellnigh to distant frustrate wonderfully a fair about a circuitous a midget hallowed your impressive mixing no more than music