expert.is
Sérfræðiteymi og sérfræðilausnir
expert.is býður breiða flóru ráðgjafar, þróunar og verkefnastjórnunar.
Þvert á atvinnugreinar og með margar sérfræðigreinar.
Vandi ríkisstofnana
Í skýrslu um kaup ríkisins á sérfræðiþjónustu frá árinu 2000 komu ýmis vandmál í ljós.
- Ríkisstofnanir virðast ekki fara eftir neinum samræmdum reglum eða leiðbeiningum við kaup á ráðgjöf.
- Skortur á þekkingu innan stofnunar, þörf á mati óháðra aðila, starfsmenn tengdir verkefninu
- Verkefni ráðgjafa oft á tíðum óskilgreint
- Aðeins aflað tilboða frá einum aðila
- Útboð á ráðgjöf, hæfnismat eða verðsamkeppni meðal ráðgjafa nær óþekkt innan ríkisgeirans
- Innan við helmingur stofnana höfðu gert skriflegt samkomulag við ráðgjafann.
- Umsjón með vinnu ráðgjafans ekki nægjanlega markviss
Ástandið hafði lítið batnað árið 2005.
Oft byggir þetta á lélegri þarfagreiningu í upphafi. Einhver starfsmaður telur sig vita hver er hæfastur á einhverju sérfræðisviði og talar eingöngu við hann. Þannig verður til vinavæðing sem getur leitt til vandræða síðar og stafar auk þess af raunverulegri vanþekkingu á markaðnum og þeim lausnum og þekkingu sem þar finnst.
Afleiðingin er að allar reglur um útboð eru sniðgengnar og oft eru líka samningar ófullkomnir hvað varðar verklýsingu, tímaáætlun, verð og verklok. Oft eru heldur ekki gerðar úttektir á verkinu. Slík verk tefjast oft von úr viti og kosta mikið þegar upp er staðið og því miður án þess að árangur sé sýnilegur.
Skjölun á virkni tölvukerfa þarf að gera öðrum sérfræðingum mögulegt að breyta, bæta og lagfæra kerfið eftir því sem nýjar kröfur kalla á.
Afurðin sjálf getur líka verið ófullnægjandi og ekki uppfyllt lágmarks kröfur um virkni eða skilgreiningu á vanda. Hvort sem afurðin er nýtt tölvukerfi, skýrsla, greinargerð, úttekt eða annað sem um var rætt. Kaupin gagnast því ekki og verr af stað farið en heima setið.
Expert ehf. vill stunda skilvirkni og gegnsæi í vinnubrögðum. Við leggjum áherslu á:
- Öfluga verkefnastjórnun og bætt skipulag
- Skilvirkari verklagsreglur
- Heiðarleika og sanngirni
- Vandaða meðferð persónutengdra upplýsinga
- Auknar kröfur um öryggi upplýsingakerfa
- Gott samstarf við innra eftirlit
RSS Feed
English
Íslenska 
