expert.is
Sérfræðiteymi og sérfræðilausnir
expert.is býður breiða flóru ráðgjafar, þróunar og verkefnastjórnunar.
Þvert á atvinnugreinar og með margar sérfræðigreinar.
Rafræn stjórnsýsla
Notkun íslendinga á Internetinu er sífellt að aukast. Flest heimili eru komin með tengingu og hagræðið eru augljóst. Stjórnsýslan vill gjarnan bjóða betri og hagkvæmari þjónustu og veita almenningi og fyrirtækjum greiðari aðgang að upplýsingum.
Viðskiptavinir sem koma í eigin persónu í afgreiðslu eða hringja inn kosta meira en viðskiptavinir sem geta afgreitt sig sjálfir á netinu.
Rafræn meðferð mála tryggir betri framgang afgreiðslu og eykur skilvirkni. Auk þess sem krafan nú er um opnari umræðu og betri aðgang að ákvarðanatöku stjórnvalda.
Verkefni Expert ehf. felast í að samþætta núverandi lausnir, koma með tillögur að nýjum og hvernig hægt er að taka gömul kerfi úr notkun – allt þannig að hagræði náist fram og að núgildandi lögum og reglum sé fylgt.
Markmiðið er hagræðing og sparnaður með því m.a. að vinna að upptöku rafrænna skilríkja, aukinni notkun rafrænna eyðublaða og stöðluðum rafrænum samskiptum stofnana.
Tags: Rafræn stjórnsýsla
RSS Feed
English
Íslenska 
