expert.is
Sérfræðiteymi og sérfræðilausnir
expert.is býður breiða flóru ráðgjafar, þróunar og verkefnastjórnunar.
Þvert á atvinnugreinar og með margar sérfræðigreinar.
Upplýsingaöryggi
Öryggismál eru lykilþáttur upplýsingatækni. Þau eru bæði spurning um skipulag og tækni. Skipulag öryggismála er útfært með reglum um ábyrgð starfsmanna, flokkun upplýsinga eftir mikilvægi og hversu viðkvæmar upplýsingarnar eru (t.d. varðandi persónuvernd). Tæknilegar útfærslur geta verið ólíkar og farið eftir mati á áhættu og áætlun um samfellu í rekstri.

Að öryggismálum þarf að huga á öllum líftíma upplýsinga. Frá öflun og skráningu yfir í vörslu, flutning, vinnslu og birtingar allt þar til upplýsingunum er loks fargað.
Talað er um þrjú lykilatriði upplýsingaöryggis:
- Trúnaður (Confidentiality) – eingöngu þeir sem til þess hafa heimild geti skoðað eða breytt upplýsingum
- Réttleiki (Integrity) – upplýsingar séu réttar og hafi ekki verið breytt eða eytt að hluta eða heild
- Tiltækileiki (Availability) – upplýsingar séu tiltækar þegar á þarf að halda
Stjórnsýslan, fyrirtæki, fjármálastofnanir, heilsugæsla og skólar safna gríðarmikilum trúnaðarupplýsingum um starfsmenn, viðskiptavini, vörur, rannsóknir og stöðu fjármála. Megninu af þessum upplýsingum er safnað og geymt á rafrænum miðlum og fluttar með tölvutækni.
Ef trúnaðarupplýsingar um viðskiptavini, fjármál eða nýja vöru í þróun berast í rangar hendur gæti slíkt rof á öryggi leitt til tapaðra viðskipta, málaferla eða jafnvel í verstu tilfellum til gjaldþrots.
Vernd viðkvæmra upplýsinga er siðferðileg skylda hvers fyrirtækis og er í mörgum tilvikum auk þess skylt samkvæmt lögum.
Verkefni okkar eru að efla aðgangsstýringu, bæta afritun og endurheimt gagna, dulritun viðkvæmra trúnaðarupplýsinga, staðfestingu réttleika upplýsinga fyrir og eftir vinnslu eða flutning, trúnaðaryfirlýsingar starfsmanna og verktaka og vírusavarnir. Verklagsreglur þurfa auk þess að vera í samræmi við gildi upplýsinganna.
Hafðu samband við okkur ef þú hefur áhuga á betri lausnum fyrir upplýsingaöryggi.
Tags: réttleiki, tiltækileiki, trúnaður, Upplýsingaöryggi
RSS Feed
English
Íslenska 
