expert.is
Sérfræðiteymi og sérfræðilausnir
expert.is býður breiða flóru ráðgjafar, þróunar og verkefnastjórnunar.
Þvert á atvinnugreinar og með margar sérfræðigreinar.
SME Week 2009: Ráðgjöf, fjármögnun og tengslanet
Nýsköpunarmiðstöð, Rannís, Útflutningsráð og Samtök Iðnaðarins halda áhugaverða kynningu um stuðningsumhverfi nýsköpunar.
Auk þessara aðila eru fjölmargir aðrir að kynna þjónustu sína: Byggðastofnun, Ferðamálastofa, Innovit, Kauphöllin, Kerfi, Klak og Matís.
Við mælum með að sem flest nýsköpunar- og sprotafyrirtæki kynni sér málið…
Dagsetning: 12.5.2009
Tími: 12:30-15:30
Staðsetning: Grand HótelDagana 6.-14. maí stendur Evrópusambandið fyrir átaki til að undirstrika mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja fyrir nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi og atvinnuuppbyggingu í Evrópu undir yfirskriftinni SME Week. Í tilefni af SME Week 2009 munu Nýsköpunarmiðstöð Íslands, RANNÍS, Útflutningsráð og Samtök iðnaðarins standa fyrir fjölbreyttum viðburðum í vikunni sem nær hámarki þriðjudaginn 12. maí þegar haldin verður sameiginleg kynning á Grand Hótel um stuðningskerfi fyrirtækja og frumkvöðla hér á landi. Markmiðið er að bjóða upp á heildstæða kynningu á þeim fjölbreytta stuðningi sem í boði er í formi ráðgjafar, fjármögnunar og tengslamyndunar.
Viðburðurinn er ætlaður fulltrúum fyrirtækja, frumkvöðlum og þeim sem eru með góðar viðskiptahugmyndir og vilja kynna sér hvaða stuðningur er í boði.
Tags: fjármögnun, kynning, nýsköpunar, Nýsköpunarmiðstöð, Rannís, ráðgjöf, Samtök iðnaðarins, SME Week, stuðningsumhverfi, tengslanet, Útflutningsráð
Nýttu LinkedIn tengslanetið
Hér er ágætis myndband um hvernig rétt er að nota LinkedIn til að efla tengslanetið (þarft reyndar að skrá þig til að skoða).
Chris Muccio frá LinkToProsper.com segir okkur frá nokkrum atriðum:
- 15 mínútur á dag
- Hvaða árangri vil ég ná fram?
- Byggja “vörumerkið” mitt – hvað get ég? hvað stend ég fyrir?
- Nota LinkedIn skráninguna (profile), LinkedIn Answers, LinkedIn Groups – bæði á vefnum og í raunverulega heiminum
- Fara vel yfir skráninguna mína og nýta alla möguleika vel, m.a. með tengingum á vefina mína og stefna að 100%
- Byggja upp tengslanetið
- Framkvæma!
Við hjá Expert.is erum stöðugt að leita að sérfræðingum og þú getur skráð þig í hópinn hér:
Tags: Chris Muccio, LinkedIn, tengslanet
RSS Feed
English
Íslenska 

