expert.is
Sérfræðiteymi og sérfræðilausnir
expert.is býður breiða flóru ráðgjafar, þróunar og verkefnastjórnunar.
Þvert á atvinnugreinar og með margar sérfræðigreinar.
ESB Rannsóknarstyrkir í upplýsingatækni
Rannís hélt kynningarfund í morgun um möguleika á styrkjum frá ESB vegna rannsókna í upplýsinga- og samskiptatækni.
Hér eru góð tækifæri fyrir samstarf fyrirtækja og sérfræðinga að setja saman öflugan hóp.
Kristinn R. Þórisson taldi upp nokkra góða punkta til að hafa í huga:
- Vel formað og snyrtilegt (hugsa: Mozart) – Fjármál, Lýsing, Þáttaka
- 70-90 blaðsíðna “proposal”
- Besta mögulega teymi
- Lykilatriði – Vandamál og Lausn
- Hugsa stórt
- Áhugavert að vera leiðtogi frekar en þátttakandi
Upplýsinga- og samskiptatækni – kynningarfundur 8. maí
Kynningarfundur á vegum Rannís um rannsóknastyrki úr 7. rannsóknaáætlun ESB til upplýsinga- og samkiptatækni verður haldinn á Grand hótel föstudaginn 8. maí kl. 9:00 – 11:00Markmið áætlunarinnar er að bæta samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs og að skapa ramma um framtíðarþróun upplýsinga- og samskiptatækni til að mæta þörfum þjóðfélagsins og hagkerfisins. Upplýsinga- og samskiptatækni er kjarni þekkingarþjóðfélagsins og með starfi og styrkjum áætlunarinnar verður rennt styrkari stoðum undir vísinda- og tæknigrunn Evrópu og tryggt verði að hún verði í forystu á þessu sviði.
Dagskrá
Upplýsinga- og samskiptatækni í 7. Rannsóknaáætlunar ESB – Oluf Nielsen, fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB.
Reynsla af þátttöku í verkefni á vegum áætlunarinnar – Kristinn R. Þórisson, Háskólanum í Reykjavík
Aðstoð í boði fyrir væntanlega umsækjendur – Aðalheiður Jónsdóttir, Rannís
Fyrirspurnir
Fundarstjóri: Sigurður Björnsson, Rannís
Tags: ESB, Rannís, Rannsóknarstyrkir, samskiptatækni, styrkir, upplýsingatækni
SME Week 2009: Ráðgjöf, fjármögnun og tengslanet
Nýsköpunarmiðstöð, Rannís, Útflutningsráð og Samtök Iðnaðarins halda áhugaverða kynningu um stuðningsumhverfi nýsköpunar.
Auk þessara aðila eru fjölmargir aðrir að kynna þjónustu sína: Byggðastofnun, Ferðamálastofa, Innovit, Kauphöllin, Kerfi, Klak og Matís.
Við mælum með að sem flest nýsköpunar- og sprotafyrirtæki kynni sér málið…
Dagsetning: 12.5.2009
Tími: 12:30-15:30
Staðsetning: Grand HótelDagana 6.-14. maí stendur Evrópusambandið fyrir átaki til að undirstrika mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja fyrir nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi og atvinnuuppbyggingu í Evrópu undir yfirskriftinni SME Week. Í tilefni af SME Week 2009 munu Nýsköpunarmiðstöð Íslands, RANNÍS, Útflutningsráð og Samtök iðnaðarins standa fyrir fjölbreyttum viðburðum í vikunni sem nær hámarki þriðjudaginn 12. maí þegar haldin verður sameiginleg kynning á Grand Hótel um stuðningskerfi fyrirtækja og frumkvöðla hér á landi. Markmiðið er að bjóða upp á heildstæða kynningu á þeim fjölbreytta stuðningi sem í boði er í formi ráðgjafar, fjármögnunar og tengslamyndunar.
Viðburðurinn er ætlaður fulltrúum fyrirtækja, frumkvöðlum og þeim sem eru með góðar viðskiptahugmyndir og vilja kynna sér hvaða stuðningur er í boði.
Tags: fjármögnun, kynning, nýsköpunar, Nýsköpunarmiðstöð, Rannís, ráðgjöf, Samtök iðnaðarins, SME Week, stuðningsumhverfi, tengslanet, Útflutningsráð
RSS Feed
English
Íslenska 
