expert.is
Sérfræðiteymi og sérfræðilausnir
expert.is býður breiða flóru ráðgjafar, þróunar og verkefnastjórnunar.
Þvert á atvinnugreinar og með margar sérfræðigreinar.
SME Week 2009: Ráðgjöf, fjármögnun og tengslanet
Nýsköpunarmiðstöð, Rannís, Útflutningsráð og Samtök Iðnaðarins halda áhugaverða kynningu um stuðningsumhverfi nýsköpunar.
Auk þessara aðila eru fjölmargir aðrir að kynna þjónustu sína: Byggðastofnun, Ferðamálastofa, Innovit, Kauphöllin, Kerfi, Klak og Matís.
Við mælum með að sem flest nýsköpunar- og sprotafyrirtæki kynni sér málið…
Dagsetning: 12.5.2009
Tími: 12:30-15:30
Staðsetning: Grand HótelDagana 6.-14. maí stendur Evrópusambandið fyrir átaki til að undirstrika mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja fyrir nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi og atvinnuuppbyggingu í Evrópu undir yfirskriftinni SME Week. Í tilefni af SME Week 2009 munu Nýsköpunarmiðstöð Íslands, RANNÍS, Útflutningsráð og Samtök iðnaðarins standa fyrir fjölbreyttum viðburðum í vikunni sem nær hámarki þriðjudaginn 12. maí þegar haldin verður sameiginleg kynning á Grand Hótel um stuðningskerfi fyrirtækja og frumkvöðla hér á landi. Markmiðið er að bjóða upp á heildstæða kynningu á þeim fjölbreytta stuðningi sem í boði er í formi ráðgjafar, fjármögnunar og tengslamyndunar.
Viðburðurinn er ætlaður fulltrúum fyrirtækja, frumkvöðlum og þeim sem eru með góðar viðskiptahugmyndir og vilja kynna sér hvaða stuðningur er í boði.
Tags: fjármögnun, kynning, nýsköpunar, Nýsköpunarmiðstöð, Rannís, ráðgjöf, Samtök iðnaðarins, SME Week, stuðningsumhverfi, tengslanet, Útflutningsráð
RSS Feed
English
Íslenska 
