expert.is
Sérfræðiteymi og sérfræðilausnir
expert.is býður breiða flóru ráðgjafar, þróunar og verkefnastjórnunar.
Þvert á atvinnugreinar og með margar sérfræðigreinar.
Viðskiptablaðið: Leggja netið fyrir alþjóð
Í nýjasta blaði Viðskiptablaðsins er viðtal við Þránd Arnþórsson, tæknistjóra Expert ehf.
Viðskiptablaðið 30. apríl 2009:
Sprotafyrirtæki: Expert og Álfatungl í einum og sama manninum
Þrándur Arnþórsson hefur unnið að uppbyggingu tveggja fyrirtækja sem vinna markaðsstarf sitt í gegnum netið þótt starfsemi þeirra sé að öðru leiti ólík.
SIGURÐUR MÁR JÓNSSON
siggi@vb.isÞrátt fyrir að vefir séu snar þáttur af íslensku viðskiptalífi þá er ekki algengt að menn reyni fyrir sér erlendis með sérhæfða vefi. Á því eru þó undantekningar. Fyrirtækið Álfatungl ehf. á og rekur nokkra vefi sem eru byggðir upp með það fyrir augum að þeir nái markaðshlutdeild á alþjóðlegum markaði. Að sögn Þrándar Arnþórssonar, framkvæmdastjóra félagsins, hefur gengið býsna vel að byggja þá upp og ná athygli erlendis. Stærsti vefurinn er 4×4OffRoads.com sem Þrándur segir að fái 10 til 12 þúsund gesti á dag. Vefsala.com er íslenski hlutinn af starfseminni og ætlað að gefa góð ráð um skynsamlega notkun vefsins sem markaðstækis, segir Þrándur. Allar tekjur vefjanna koma erlendis frá en auglýsingar frá Google AdSense og eBay eru þar stærsti þátturinn segir Þrándur. En hver er ávinningurinn af því að hafa alþjóðlega vefi á Íslandi?
“Ávinningurinn er kannski mestur í að nýta sér hraðan vöxt vefsins, sem stækkar ört þrátt fyrir alheimskreppu. Þarna eru tækifæri fyrir fólk sem vill prófa nýjar leiðir og skapa sér tekjur með örlítið öðruvísi hugsun og framkvæmd. Mér finnst þróunin vera mjög spennandi og gaman að taka þátt í þessu,” segir Þrándur.
Opin nýsköpun
En Þrándur er með fleira í gangi um þessar mundir. Hann hefur ásamt tveimur öðrum sérfræðingum unnið að stofnun sprotafyrirtækisins Expert ehf. (expert.is). Fyrirtækið býður heildræna hugbúnaðarþróun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnastofna, fjármála- og áhættugreiningu, viðskiptagreiningu og endurhönnun viðskiptaferla. “Expert byggir á hugmyndum um opna nýsköpun, þar sem sérfræðingar eru ráðnir til ákveðinna afmarkaðra verkefna, en eru ekki fastir í einu fyrirtæki til lengri tíma,” sagði Þrándur. Með honum í verkefninu eru Kjartan Bergsson og Tamara Roesel sem eru bæði verkfræðingar og störfuðu áður í verkefnastjórnun hjá Kaupþingi.
Skoða erlend útboð
“Við skiptum með okkur verkum og hefur Kjartan verið framkvæmdastjóri, Tamara fjármálastjóri og ég tæknistjóri. Við leggjum áherslu á að funda reglulega og móta næstu skref. Við höfum notað tengslanetið og vefinn okkar ásamt LinkedIn til að fá sérfræðinga til að skrá sig hjá okkur auk þess sem við reynum að nota Internetið við að kynna fyrirtækið fyrir mögulegum viðskiptavinum.”
Að sögn Þrándar hefur Expert verið í samvinnu við VJI verkfræðistofu við að bjóða í verk erlendis á vegum aðila eins og Alþjóðabankanns, Sameinuðu þjóðanna auk verkefna á Evrópska efnahagssvæðinu. Auk þess eru allar aðrar leiðir við verkefnaöflun skoðaðar. “Það hefur gengið rólega að stækka viðskiptavinahópinn, en þó eru nokkur verkefni í gangi hér innanlands.”
Tags: alþjóð, netið, Viðskiptablaðið, Viðtal, Þrándur
RSS Feed
English
Íslenska 

