expert.is
Sérfræðiteymi og sérfræðilausnir
expert.is býður breiða flóru ráðgjafar, þróunar og verkefnastjórnunar.
Þvert á atvinnugreinar og með margar sérfræðigreinar.
Sköpum framtíð fyrir tæknifólk
Vinnuhópur SV, TFÍ og VFÍ hefur unnið að því að skapa vettvang fyrir þá félagsmenn sína sem hafa áhuga á að hittast og vinna saman að því að skapa sér framtíð.
Fyrsti fundur var föstudaginn 06.02.2008 í húsi félaganna að Engjateigi.
Áætlað er að hittast vikulega og þá á föstudögum. Sjá m.a. vef VFÍ.
Undirritaður tók þátt í mjög góðum fundi og voru eftirfarandi punktar teknir saman á mínu borði.
Það þarf að auka sveigjanleika á vinnumarkaði tæknimanna. M.a. með því að:
- Styrkja umhverfi freelance sérfræðinga
- Kynna fyrir fyrirtækjum að hagkvæmt sé að sækja sérþekkingu til freelance tæknimanna
- Sýna fram á að hægt sé að stofna mjög öflug verkefnateymi með þvi að setja saman og spila úr sérþekkingu fyrirtækja og einstaklinga.
- Skoða betur erlendar hugmyndir um virtual fyrirtæki, þ.e. þar sem huglæg fyrirtæki eru búin til um flókin og stór verkefni, tryggð með gagnkvæmum samningum milli verkkaupa og samningsaðila (huglæga fyrirtækið eða verktakann og undirverktaka þess)
- Finna leiðir til markvisst að ná í verkefni (nýta m.a. sendiráðsritara) og fjármagna verkefna leit.
Greina innflutning Íslands með það að markmiði að finna framleiðslutækifæri. Dæmi:
- áburðarframleiðsla
- biodiesel
- Grænir bílar þ.e. breyta núverandi bifreiða og vörubílakosti í t.d. rafmagns, metangas, vetnisbíla eða gera betur hæfa fyrir biodiesel
- osfrv.
Taka saman hvar ríkisvaldið þyrfti að ívilna t.d.:
- Lækkun aðflutningsgjalda á rafmagnsbílum og breytingar pökkum nýtta til að minnka innflutning á olíu og bensíni.
- Lækka verð á rafmagni til bænda og garðyrkjubænda.
kjartan hjá expert.is
Tags: expert, nýsköpun, Sprotafyrirtæki, tæknifólk
RSS Feed
English
Íslenska 
