expert.is
Sérfræðiteymi og sérfræðilausnir
expert.is býður breiða flóru ráðgjafar, þróunar og verkefnastjórnunar.
Þvert á atvinnugreinar og með margar sérfræðigreinar.
Google Chrome OS Stýrikerfi
Undanfarin ár hefur sterkasta vígi Microsoft verið stýrikerfið Windows.
Nú hefur Google lýst yfir að þeir ætli að bjóða stýrikerfi fyrir einkatölvur. Stýrikerfið nefna þeir Google Chrome OS og vísa þar í Chrome vafrann sem náð hefur miklum vinsældum. Stýrikerfið verður þannig byggt á vafranum og fellur vel inn í alla flóru kerfa sem Google hefur verið að þróa og byggja á veftækni.
Það er augljóslega markmið Google að ráðast nú að höfuðvígi Microsoft með skýrari heildarsýn á framtíðina. Framtíð sem byggir á ódýrum aðgangi að Internetinu og sítengingu hvar og hvenær sem er. Og líka framtíð sem byggir á ódýrum og litlum tækjum sem hægt er að nota til að vafra um netheima og eiga samskipti við vini og samstarfsmenn.
Myndin er að skýrar og hvert sem litið er getur þú nú notað kerfi frá Google:
- Google Chrome til að vafra um netið á Windows, Linux eða Mac vélum
- YouTube til að skoða og deila myndböndum
- Picasa til að skoða og deila myndum
- GMail fyrir allan tölvupóst
- Google Reader til að fylgjast með fréttum og bloggi
- Google Docs fyrir ritvinnslu, töflureikni og kynningar
Að sjálfsögðu tengir Google líka framtíðarstýrikerfið við Google Friend Connect sem gerir það mun öflugra en Facebook, Twitter og önnur félagsnetverk.
Nú verður fróðlegt að sjá hvort og hvernig Microsoft ætlar að bregast við…
Hvað heldur þú?
Tags: Chrome OS, Google Chrome OS, Microsoft, Stýrikerfi
Expert semur við Ríkiskaup
Expert hefur nú undirritað rammasamning við Ríkiskaup vegna kaupa á ráðgjöf vegna upplýsingatækni.
Nú þegar rammasamningarnir hafa tekið gildi geta stofnanir og fyrirtæki ríkisins leitað til Expert og þeirra ráðgjafa annarra sem eiga aðild að samningum um viðkomandi þjónustu og ýmist keypt þjónustu beint af þeim eða farið í svokallað örútboð innan rammasamnings með einstök stærri verkefni.
Með notkun rammasamninga er útboðsskylda vegna verkefna ríkisins uppfyllt, jafnt innanlands sem á Evrópska efnahagssvæðinu EES.
Hér opnast tækifæri fyrir ríkisfyrirtæki til að auka hagkvæmni í rekstri og flýta mikilvægum verkefnum. Expert ehf fagnar þessu framtaki og vonar að framkvæmdin heppnist sem best.
Hugmyndafundur N1 Start
Þessi fyrsti hugmyndafundur N1 kom bara nokkuð vel út. Fyrst og fremst var hann góður til að byggja upp jákvæðni og bjartsýni á framtíð Íslands, sem veitir ekki af þessa dagana.
Hermann Guðmundsson forstjóri N1 fór vítt yfir sviðið og talaði um framtíðina og hvernig við þurfum sem þjóð að huga að menntun ungmenna og áherslum í atvinnuþróun. Ný störf verða helst til í öðrum greinum en sjávarútvegi. Hann ræddi líka um grunngildi eins og heiðarleika, sanngirni, virðingu o.fl.
How to Build a Vision for a Nation – and a Great Place to Work
Salem Samhoud er hollenskur frumköðull og hefur leitt vinnu við framtíðarstefnumótun fyrir Holland. Stjórnmálamenn koma ekki með hugmyndirnar. Vinnan skilaði hnitmiðuðum atriðalista sem margir geta sammælst um:
- Stefna (hvetjandi, skapandi þjóðfélag, opið og með þátttöku þegnanna, sameining um fjölbreytileika)
- Grunngildi (virðing, umhyggja, frelsi, ábyrgð, bjartsýni, frumkvæði)
- Hæfileikar og geta
- Mælanleg langtímamarkmið (þjóðarhamingja, 100% hrein orka, besta menntun, hýsa Ólympíuleika)
My 12 Secrets for Running a Life and Living a Business
Jeff Taylor er frumkvöðull sem kom m.a. Monster.com atvinnumiðlunarvefnum á fót (með 140 milljón skráðar ferilskrár). Jeff talaði um “árangur” og frumkvöðla. Þú byrjar einn en færð fleiri í lið með þér ef hugmyndin er góð og þér tekst að vinna henni fylgis. Hann talaði um “ótrúlegt bankahrun” sem getur verið bæði jákvætt og neikvætt.
Þú ert framkvæmdastjóri í þínu lífi. Fjögur atriði til að fylgja því eftir og skapa FAME:
- F – Free agent – frjáls í hugsun og framkvæmd
- A – Athlete training – þjálfa eins og íþróttamaður
- M – Marketing preparation – undirbúa markaðssetningu
- E – Entrepreneur – frumkvöðlahugsun
Vera ófeiminn að TALA og segja frá hugmynd sinni. Byggja upp vörumerki og síðast en ekki síst – gera hugmyndina smitandi (viral).
Guðjón Már Guðjónsson ráðuneytisstjóri Hugmyndaráðuneitisins tók síðan saman helstu atriði og sýndi myndband um hvernig “frumkvöðull” getur fengið hóp til að taka þátt.
N1 ætlar að halda áfram með þessa hugmynd og vonandi að fleiri stór fyrirtæki geri eitthvað svipað.
Á n1.is er hægt að fá meiri upplýsingar…
Tags: Hugmyndafundur, N1, Start
Náðu árangri í erlendum útboðum
Útflutningsráð Íslands stóð fyrir námskeiði um erlend útboð, þar sem farið var yfir tilboðsferlið, allt frá upplýsingaöflun til hagnýtra ráða við tilboðsgerð.
Fyrirlesari var Richard Hall frá EISC Ltd. – Enterprise Europe Network í Bretlandi. EISC hafa m.a. haldið námskeið í Bretlandi og á Norðurlöndunum. Einnig sagði Ragnar Marteinsson frá Hugsmiðjunni frá árangri sínum í erlendum útboðum með Eplica.
Efni námskeiðsins:
- Hvað er opinbert útboð og hvernig er útboðsferlið?
- Upplýsingar um útboð erlendis
- Ákvörðunarferli, mat og kauphegðun opinberra aðila
- Undirbúningur og hagnýt ráð fyrir tilboðsgerð
Námskeiðið tókst mjög vel og var áhugavert að kynna sér þessi mál.
Nokkur lykilorð sem við lærðum:
- PQQ – Pre Qualification Questionair
- ITT – Invitation to Tender
- CN – Contact Notice
Verkefnavefir:
- CompeteFor – Verkefnavefur Ólympíuleikanna í London 2012
- Ted.Europa.eu – Tenders Electronics Daily – Evrópuverkefni
- Supply2.gov.uk – Verkefni undir 50.000 GBP.
Richard er frá WinningTenders.eu og hafa þeir náð góðum árangri í útboðum.
Hafa í huga:
- Lýsing með lykilatriðum og sérstöðu
- Policies – Equal Opportunity, Quality Management System, Health/Safety,Ethical,Environmental
- Insurance
- Áhætta og hvað er gert til að minnka hana (gæðastjórnun, tryggingar, reynsla) – nota töflu
- Sustainability
- Gildi fyrir viðskiptavini, starfsmenn og samfélag
Tags: ákvörðunarferli, árangur, erlend, kauphegðun, útboð
Fréttatilkynning: Expert Sprotafyrirtæki
Expert ehf. er sprotafyrirtæki sem er lítið og straumlínulagað. Markmiðið er að hafa litla yfirbyggingu en mikinn sveigjanleika með útvistun. Við viljum miðla þekkingu sem er til staðar hér á Íslandi og veita hágæða viðskiptaráðgjöf ásamt þróun hugbúnaðarlausna og árangursríkri verkefnastjórnun.
Markmiðið er öflug miðlun fyrir Íslenska sérfræðinga að finna verkefni og fyrir fyrirtæki að finna réttu sérfræðingana. Við höfum nú um 30 sérfræðinga á skrá hjá okkur og fá þeir reglulegar upplýsingar um möguleg verkefni sem yfirleitt eru tímabundin. Hagur fyrirtækja er að létta byrði og auka sveigjanleika á erfiðum tímum.
Verkefni eru sótt jafnt innanlands sem utan, en okkar markmið að halda starfsmönnum og þeirra fjölskyldum hér heima.
Við viljum berjast gegn þekkingarflótta sem kreppan getur leitt til. Við viljum nefnilega ekki missa besta fólkið úr landi heldur byggja upp íslenskan þekkingargrunn. Á þann hátt styrkjum við íslenskt atvinnulíf og sköpum ný atvinnutækifæri.
Sveigjanleiki er lykilatriði við nútíma markaðsaðstæður. Markaður sem byggir á sífellt auknum hraðra breytinga og alþjóðavæðingu. Sveigjanleikinn er fenginn með því að reka tímabundin verkefni (sem hafa skýrt upphaf og endi) eða leysa úr álagstoppum. Einnig eru fyrirtæki oft með árstíðabundnar tekjur og verða að aðlaga starfsemi sína því umhverfi. Íslenskir sérfræðingar Expert eru vel menntaðir, hafa unnið í flóknu alþjóðlegu umhverfi og tekist að leysa stór og margslungin verkefni.
Hugmyndafræði og áherslur Expert falla vel að þessum aðstæðum. Við setjum saman teymi Íslenskra sérfræðinga sem hafa yfir að ráða nauðsynlegri þekkingu og reynslu. Þannig getum við fengist við stór verkefni þar sem við samþættum innri kerfi, innleiðum nýja ferla og útfærum nýja tækni – innan ákveðins tíma- og kostnaðarramma. Þar liggur hagur framsýnna fyrirtækja.
Fréttatilkynningin birtist:
Viðskiptablaðið - Expert ehf.: Með 30 sérfræðinga á skrá
Tags: expert, Fréttatilkynning, Sprotafyrirtæki
Viðskiptablaðið: Leggja netið fyrir alþjóð
Í nýjasta blaði Viðskiptablaðsins er viðtal við Þránd Arnþórsson, tæknistjóra Expert ehf.
Viðskiptablaðið 30. apríl 2009:
Sprotafyrirtæki: Expert og Álfatungl í einum og sama manninum
Þrándur Arnþórsson hefur unnið að uppbyggingu tveggja fyrirtækja sem vinna markaðsstarf sitt í gegnum netið þótt starfsemi þeirra sé að öðru leiti ólík.
SIGURÐUR MÁR JÓNSSON
siggi@vb.isÞrátt fyrir að vefir séu snar þáttur af íslensku viðskiptalífi þá er ekki algengt að menn reyni fyrir sér erlendis með sérhæfða vefi. Á því eru þó undantekningar. Fyrirtækið Álfatungl ehf. á og rekur nokkra vefi sem eru byggðir upp með það fyrir augum að þeir nái markaðshlutdeild á alþjóðlegum markaði. Að sögn Þrándar Arnþórssonar, framkvæmdastjóra félagsins, hefur gengið býsna vel að byggja þá upp og ná athygli erlendis. Stærsti vefurinn er 4×4OffRoads.com sem Þrándur segir að fái 10 til 12 þúsund gesti á dag. Vefsala.com er íslenski hlutinn af starfseminni og ætlað að gefa góð ráð um skynsamlega notkun vefsins sem markaðstækis, segir Þrándur. Allar tekjur vefjanna koma erlendis frá en auglýsingar frá Google AdSense og eBay eru þar stærsti þátturinn segir Þrándur. En hver er ávinningurinn af því að hafa alþjóðlega vefi á Íslandi?
“Ávinningurinn er kannski mestur í að nýta sér hraðan vöxt vefsins, sem stækkar ört þrátt fyrir alheimskreppu. Þarna eru tækifæri fyrir fólk sem vill prófa nýjar leiðir og skapa sér tekjur með örlítið öðruvísi hugsun og framkvæmd. Mér finnst þróunin vera mjög spennandi og gaman að taka þátt í þessu,” segir Þrándur.
Opin nýsköpun
En Þrándur er með fleira í gangi um þessar mundir. Hann hefur ásamt tveimur öðrum sérfræðingum unnið að stofnun sprotafyrirtækisins Expert ehf. (expert.is). Fyrirtækið býður heildræna hugbúnaðarþróun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnastofna, fjármála- og áhættugreiningu, viðskiptagreiningu og endurhönnun viðskiptaferla. “Expert byggir á hugmyndum um opna nýsköpun, þar sem sérfræðingar eru ráðnir til ákveðinna afmarkaðra verkefna, en eru ekki fastir í einu fyrirtæki til lengri tíma,” sagði Þrándur. Með honum í verkefninu eru Kjartan Bergsson og Tamara Roesel sem eru bæði verkfræðingar og störfuðu áður í verkefnastjórnun hjá Kaupþingi.
Skoða erlend útboð
“Við skiptum með okkur verkum og hefur Kjartan verið framkvæmdastjóri, Tamara fjármálastjóri og ég tæknistjóri. Við leggjum áherslu á að funda reglulega og móta næstu skref. Við höfum notað tengslanetið og vefinn okkar ásamt LinkedIn til að fá sérfræðinga til að skrá sig hjá okkur auk þess sem við reynum að nota Internetið við að kynna fyrirtækið fyrir mögulegum viðskiptavinum.”
Að sögn Þrándar hefur Expert verið í samvinnu við VJI verkfræðistofu við að bjóða í verk erlendis á vegum aðila eins og Alþjóðabankanns, Sameinuðu þjóðanna auk verkefna á Evrópska efnahagssvæðinu. Auk þess eru allar aðrar leiðir við verkefnaöflun skoðaðar. “Það hefur gengið rólega að stækka viðskiptavinahópinn, en þó eru nokkur verkefni í gangi hér innanlands.”
Tags: alþjóð, netið, Viðskiptablaðið, Viðtal, Þrándur
Expert í Kvosina Nýsköpunarmiðstöð
Expert ehf fékk nýlega úthlutað aðstöðu fyrir starfsemi sína í Kvosinni Nýsköpunarmiðstöð sem er í húsi Íslandsbanka Lækjargötu 12. Hér eru nokkur önnur nýsköpunar- og sprotafyrirtæki sem áhugavert er að vera í návígi við.
Tags: Kvosin, Nýsköpunarmiðstöð
Styrkur frá Orkuveitu Reykjavíkur
Expert ehf sótti um styrk vegna uppbyggingar atvinnulífsins, undir heitinu „Sköpum framtíð fyrir tæknifólk“.
Helstu rökin eru að Expert ehf getur skapað atvinnutækifæri fyrir íslenska sérfræðinga hér heima og erlendis og þannig komið í veg fyrir landflótta þekkingar.
Tags: landflótti, Orkuveita Reykjavíkur, Styrkur
Ráðgjöf í upplýsingatækni – Rammas. m.örútboðum
Expert ehf sendi inn tilboð til Ríkiskaupa vegna útboðsins
Tilboðin voru opnuð þann 22. apríl 2009
Helstu forsendur þess að ráðist var í útboð á þessum þjónustuflokkum eru:
a) Þörf ríkisins fyrir hágæða ráðgjafaþjónustu
b) Þörf fyrir fjárhagslega hagkvæmni og upplýsingar um verð og framboð
c) Nauðsyn þess að gefa öllum ráðgjöfum jafnan rétt og jöfn tækifæri til að keppa um þau verkefni sem bjóðast hjá ríkinu.
d) Þörf fyrir jafnræði og gagnsæi í vali á ráðgjafaþjónustu.
Ljóst er að mikil vinna er framundan hjá Ríkiskaupum við að fara yfir og meta öll tilboðin en vonir standa til að niðurstaða verði komin úr öllum þremur innan fárra vikna.
Hér er listi yfir þá sem sendu inn tilboð:
Við opnun eru lesin upp nöfn bjóðenda.
Engar athugasemdir gerðar við framkvæmd útboðsins.
1. Skyggnir
2. Opin kerfi
3. Kögun
4. Ásverk
5. Gagarín
6. Teris
7. Eskill
8. Staki
9. Sensa ehf.
10. VJI ráðgjöf
11. Stiki
12. GoPro
13. Þekking
14. Applicon ehf.
15. Skýrr
16. EJS
17. Admon ráðgjöf
18. Expert.is sérfræðingamiðlun
19. Tölvu- og verkfræðiþjónustan
20. UT ráðgjöf ehf.
21. ParX ehf.
22. Vigor ehf.
23. Mannvit
24. TM Software
25. Viki ehf.
26. Hugur/Ax
27. IT ráðgjöf og hubúnaðarþjónusta ehf.
28. Trackwell hf.
29. Framnes ehf.
30. Mikron
31. Capacent
Fleiri tilboð bárust ekki. Engar athugasemdir gerðar við framkvæmd fundarins.
Tags: örútboð, rammasamningur, ráðgjöf, Ríkiskaup, upplýsingatækni
Námskeið í verkefnastjórnun hjá Eimskip
Expert ehf. hélt nýlega námskeið í verkefnastjórnun fyrir starfsmenn Eimskips á upplýsingatæknisviði. Aðalheiður Sigurðardóttir sérfræðingur hjá Expert ehf. fór þar yfir helstu atriði verkefnastjórnunar útfrá hugtakaklykli Verkefnastjórnunarfélags Íslands.
Þátttakendur voru mjög ánægðir með efni, framsetningu og leiðbeinanda. Kemur til með að nýtast þeim mjög vel í starfi sem Verkefnastjórar í IT.
Kristján Þór Hallbjörnsson
Senior Manager Information Management
Tags: Eimskip, Námskeið, verkefnastjórnun
RSS Feed
English
Íslenska 

